HSN -Að kveikja á eigin krafti – Að mæta áskorunum af jákvæðni og opnum huga – Vefnámskeið

Námskeiðið byggir á grunni lífsþjálfunar með það að markmiði að þátttakendur öðlist fleiri hagnýt verkfæri til að bregðast við ólíkum áskorunum, óvissu eða breytingum með yfirvegun, forvitni og ábyrgð. 

  • Að efla seiglu og viðbragðsgetu í óvæntum eða krefjandi aðstæðum 
  • Að auka getu til að bregðast við breytingum af jafnvægi og sjálfsöryggi 
  • Að rækta innri styrk, jákvæðni og forvitni 
  • Að efla viðhorf um sveigjanleika og skapandi lausnarleit 

 

 

Leiðbeinandi: Huld Aðalbjarnardóttir, lífsþjálfi 

Hvar og hvenær: Mánudagurinn 17. nóvember frá kl 17-19