Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).
Markmið: | Markmiðið er að þjálfa heilbrigðisstarfsfólk í aðgerðum til að koma í veg fyrir hjartastopp, beita grunnendurlífgun þ.e. hjartahnoði öndunarhjálp og rafstuði þar til sérhæfð aðstoð berst. Tilgangurinn með þeirri þjálfun felst í því að gera starfsmanninn færari um að taka þátt í endurlífgun sem meðlimur teymisins. |
| |
Viðfangsefni: | Námskeiðið er haldið í samvinnu við Endurlífgunarráð Íslands og Evrópska Endurlífgunarráðsins. Það er byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins og kennt samkvæmt því. Námskeiðið er samansett af fyrirlestrum, verklegum æfingum og umræðum. Í fyrirlestrum er farið yfir orsakir og forvarnir hjartastopps og vinnuferla við endurlífgun. Í verklegum stöðvum er lögð áhersla á frumskoðun og endurlífgun, öndunarhjálp og teymisvinnu í endurlífgun. Mest er áhersla á verklegar æfingar og virka þátttöku nemandans. |
| |
Inntökuskilyrði: | Heilbrigðisstarfsfólk sem kemur sjaldan að endurlífgun en þarf samt að geta brugðist við og tekið þátt í endurlífgun t.d. sjúkra- og neyðarflutningamenn, læknar, hjúkrunarfræðingar, hjúkrunarfræði- og læknanemar. |
| |
Námsmat: | Símat á virkni og getu nemenda. |
| |
Námsefni: | Námsefnið er rafrænt, aðgengilegt á vef ERC þegar skráning hefur verið staðfest og er innifalið í verði námskeiðsins. Nemendur skulu hafa lokið rafræna hlutanum áður en að verklegum hluta námskeiðsins kemur. |
Leiðbeinendur: Hrafnhildur Lilja Jónsdóttir frá Sjúkraflutningaskólanum
Hvar og hvenær:
Ath Skráning þarf að berast fyrir 24.mars
13.maí Sauðárkrókur 8:30-17:30
12.maí Blönduós 8:30-17:30