Viltu læra listina á bak við hið fullkomna soðbrauð eða hvernig á að fletta út þunnum og bragðgóðum flatkökum? Á þessu námskeiði köfum við ofan í íslenska brauðgerðarhefð.
Við leggjum áherslu á handverkið, tilfinninguna fyrir deiginu og hefðirnar.
Við lærum að baka:
- Kleinur og Soðbrauð: Við lærum réttu handbrögðin við að skera og snúa kleinur og djúpsteikja soðbrauð þannig að það verði létt og gullinbrúnt.
- Rúgbrauð – Gamla og nýja leiðin: Við skoðum muninn á því að baka rúgbrauð með hefðbundnum hætti og með fljótlegri leiðum sem henta nútíma eldhúsi, án þess að fórna bragðinu.
- Flatkökubakstur: Farið er yfir gerð deigsins, hnoðun og hvernig við fletjum út flatbrauð. Við lærum að eldbaka flatkökur og fá þannig rétta útlitið og bragðið.
Leiðbeinandi: Ásta Búadóttir, kennari og matreiðslumeistari
Hvar og hvenær:
Hvammstangi 8. apríl klukkan 17:00
Sauðárkrókur 15. apríl klukkan 17:00
Skagaströnd/Blönduós 22. apríl klukkan 17:00
Námskeiðið er styrkt af SSNV
Þátttakendur greiða því aðeins efniskostnað
Verð: 9.700 kr
