Lífrænn áburður og náttúrulegar varnir

Hvernig tryggjum við góða uppskeru og heilbrigðar plöntur án þess að nota tilbúinn áburð eða eitur?

 Á þessu námskeiði er fjallað um hvernig styðja má við heilbrigðan vöxt plantna og góða uppskeru með lífrænum aðferðum. Farið verður yfir næringarþarfir plantna og hvernig frjósemi jarðvegs er byggð upp með lífrænum áburði og jarðvegsbótum. Einnig verður fjallað um hvernig greina má einkenni næringarskorts og annarra vandamála og hvernig bregðast má við á markvissan hátt.
Þátttakendur kynnast helstu tegundum lífræns áburðar og notkun þeirra og hvernig næringarefnaupptaka virkar í lífrænum jarðvegi.

Einnig verður farið yfir helstu áskoranir sem geta komið upp í ræktun, svo sem illgresi, skaðvalda og sjúkdóma, og hvernig má takast á við þau vandamál með lífrænum leiðum.

Aðgangur er ókeypis þökk sé styrk frá SSNV, en nauðsynlegt er að skrá sig.

ATH. Takmarkað sætaframboð

Leiðbeinandi: Elínborg Erla Ásgeirsdóttir

Hvar og hvenær:

Kennt í Farskólanum á Sauðárkróki

8. apríl klukkan 18:30-20:30