Hvers vegna að kaupa áburð þegar þið getið búið hann til sjálf?
Á þessu námskeiði er farið yfir hvernig má umbreyta lífrænum úrgangi í verðmætan jarðvegsbæti.
Fjallað verður um helstu ferli niðurbrots og jarðgerðar og hvernig stýra má aðstæðum þannig að ferlið sé skilvirkt og snyrtilegt.
Kynntar verða mismunandi aðferðir, svo sem köld jarðgerð og heit, bokashi og ormamolta og rætt hvaða aðferðir henta við mismunandi aðstæður. Einnig hvernig er hægt að nýta afurðina á mismunandi hátt í hvers kyns ræktun t.d sem jarðvegsbæti, næringargjafa, yfirborðsþekju og í moltute.
Námskeiðið hentar öllum sem vilja bæta jarðvegsgæði og nýta lífræn hráefni betur á umhverfisvænan hátt.
Aðgangur er ókeypis þökk sé styrk frá SSNV, en nauðsynlegt er að skrá sig.
ATH. Takmarkað sætaframboð
Leiðbeinandi: Elínborg Erla Ásgeirsdóttir
Hvar og hvenær:
Kennt í Farskólanum á Sauðárkróki
26. mars klukkan 18:30-20:30
