Myndlist

-Fullorðinsfræðsla fyrir fatlað fólk

Viltu prófa eitthvað nýtt og skapandi? Farskólinn býður upp á námskeið í myndlist sem er sérstaklega hannað fyrir fatlað fólk. Lögð er áhersla á að allir fái að njóta sín á sínum eigin forsendum í rólegu og hvetjandi umhverfi. Á námskeiðinu verður unnið með teikniblýanta og akrýlliti.

Efni: Teikniblýantar, teiknipennar og akrýllitir, pappír og strigi.

Verkefni: Blöndun lita, portrett, landslag, uppstilling og klippimyndir. Aðferð við að mála eftir ljósmynd. Hlutföll mannslíkamans kynnt á einfaldan hátt.

Dag og tímasetning:

19. febrúar klukkan 17:00-19:00

26. febrúar klukkan 17:00-19:00

5. mars klukkan 17:00-19:00

12. mars klukkan 17:00-19:00

19. mars klukkan 17:00-19:00

26. mars klukkan 17:00-19:00

Leiðbeinandi: Bryndís K. Williams Þráinsdóttir.

Námskeiðið verður kennt í myndmenntastofunni í Árskóla

Verð: 8000 kr