Nýting uppskerunnar úr garðinum

Viltu læra fleiri aðferðir til að nýta grænmetið sem þú ræktaðir í sumar?

Á þessu námskeiði er fjallað um hvernig nýta má uppskeru úr matjurtarækt með einföldum og hagkvæmum aðferðum.

Farið verður yfir helstu aðferðir til að varðveita grænmeti, svo sem frystingu, þurrkun og sýringu, og hvernig þessar aðferðir geta lengt nýtingartíma uppskerunnar og dregið úr matarsóun. Einnig verður fjallað um hvernig nýta má mismunandi hluta plantna og hvernig vinna má með uppskeruna sem hráefni til daglegrar matargerðar.

Áhersla verður lögð á hagnýtar og öruggar aðferðir sem er auðvelt að fylgja í eldhúsinu heima.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist þekkingu og færni til að nýta uppskeru sína betur og varðveita hana til notkunar yfir lengri tíma.

Námskeiðið er niðurgreitt með styrk frá SSNV,  nauðsynlegt er að skrá sig.

ATH. Takmarkað sætaframboð

Leiðbeinandi: Elínborg Erla Ásgeirsdóttir

Hvar og hvenær:

Staðarnámskeið-Kennt á norðurlandi vestra

Nánari upplýsingar síðar

Verð: