Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).
Farið er yfir orsakir, áhættuþætti, gerðir, útlit og staðsetningar þrýstingssára. Stöðluðu gagnreyndu verklagi verður lýst þar sem m.a. verður talað um HAMUR, áhættumat og atvikaskráningu. Umræður.
Námsmarkmið: Að starfsmenn þekki orsaka- og áhættuþætti þrýstingssára, hvernig þau líta út og hvar þau eru staðsett á líkama sjúklinga. Einnig að starfsmenn þekki hvernig skal unnið eftir stöðluðu gagnreyndu verklagi í þrýstingssáravörnum.
Markhópur: Allir starfsmenn sem sinna umönnun sjúklinga
Leiðbeinandi:
Hulda Margrét Valgarðsdóttir, hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri á Verkefnastofu Landspítala
Fyrirkomulag: Fyrirlestur á netinu
Dag og tímasetning: 24. febrúar klukkkan 15:00-16:00
