Uppleið – nám byggt á hugrænni atferlismeðferð

Nám sem byggt er á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar er ætlað þeim sem eru 18 ára og eldri og hafa ekki lokið námi í framhaldsskóla. Námið byggir á fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu bæði í kennslustundum og utan þeirra.  

Námið er samstarfverkefni SÍMEY og Farskólans, miðstöðvar símenntunnar á Norðurlandi vestra 

Markmið: Er að auka færni þátttakenda í að takast á við hamlandi líðan með því að nýta sér aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) í daglegu lífi. Fjallað verður um þunglyndi og kvíða, markmiðasetningu, breytta hugsun, sjálfsmat og sjálfseflingu og bakslagsvarnir. 

Lengd: Námið er samtals 40 klukkustundir að lengd og þar af 24 klukkustundir með leiðbeinanda. 

Verð: 11.800.kr ef þátttakandi er í markhópi framhaldsfræðslunnar, en 55.000 kr. ef svo er ekki. Markhópur framhaldsfræðslunnar er fólk sem ekki hefur lokið stúdentsprófi eða iðnmenntun. 

 

Leiðbeinandi: Líney Úlfarsdóttir Sálfræðingur

Hvar og hvenær: Námið verður kennt á netinu í gegnum ZOOM.  Kennt verður tvö kvöld í viku í 12 skipti, þriðjudaga og fimmtudaga 18:00-20:00, hefst 10.febrúar 18:00-20:00 

*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi