Útiræktun grænmetis og fjölærra nytjaplantna

Á þessu námskeiði er fjallað um útiræktun grænmetis og annarra nytjaplantna með áherslu á lífrænar aðferðir og tegundir og yrki sem hafa reynst vel við íslenskar aðstæður.

Farið verður yfir helstu þætti sem hafa áhrif á árangur í ræktun, svo sem undirbúning ræktunarbeða, jarðveg og jarðvegsbætur, skiptiræktun, staðsetningu, tegundaval og mismunandi útfærslur ræktunarsvæða, allt frá pottum til upphækkaðra beða og stærri garða.

Einnig verður fjallað um ræktun og umhirðu algengra grænmetistegunda, fjölærra matjurta og berjarunna, með áherslu á aðferðir sem stuðla að heilbrigðum jarðvegi og stöðugri uppskeru til lengri tíma.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist hagnýta þekkingu sem gerir þeim kleift að skipuleggja og viðhalda afkastamikilli og sjálfbærri ræktun utandyra.

Aðgangur er ókeypis þökk sé styrk frá SSNV, en nauðsynlegt er að skrá sig.

ATH. Takmarkað sætaframboð

Leiðbeinandi: Elínborg Erla Ásgeirsdóttir

Hvar og hvenær:

Kennt í Farskólanum á Sauðárkróki

16. apríl klukkan 18:30-20:30