Samkvæmt samningi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins býður Farskólinn fullorðnu fólki sem ekki hefur lokið framhaldsskóla upp á námskeið og námsleiðir sem metin eru til framhaldsskólaeininga og vottaðar eru af mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Námskeið Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins eru fjármögnuð af Fræðslusjóði á móti þátttökugjöldum.
Flokka má námsskrár Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins í almennar námskrár og starfstengdar námskrár. Hér má sjá yfirlit yfir námskrár FA.
Árið 2023 er Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú kennd í Farskólanum. Því námi lýkur í desember 2024. Verið er að undirbúa Kvikmyndasmiðju, Skrifstofuskóla og Grunnmennt.