Lærðu að búa til gæðapylsur sem bæði bragðast vel og seljast vel.
Langar þig að nýta hráefni sem til fellur í annað en hakk, sperðla eða bjúgu? Eða langar þig einfaldlega að læra alvöru handverk til að dýpka „brasið“ heima í eldhúsinu?
Á þessu námskeiði förum við yfir listina að búa til hágæða pylsur sem lyfta bæði vöruúrvali framleiðandans og matarborðinu heima á hærra plan. Við sýnum hvernig má nýta kjötið í eitthvað miklu meira en bara hefðbundið hakk og galdra fram eftirsóttar sælkerapylsur með réttu áferðinni og bragðinu.
Á námskeiðinu er farið yfir:
- Mismunandi tækni: Allt frá grófum handhrærðum pylsum yfir í silkimjúkar farspylsur.
- Klassíska mola: Við útbúum t.d. Bratwurst, Medister og djúsí ostapylsur, bæði ferskar og reyktar.
- Fjölbreytni í úrvali: Frábær leið fyrir þá sem vilja bjóða viðskiptavinum sínum (eða fjölskyldunni!) upp á eitthvað nýtt og spennandi.
- Afraksturinn heim: Þátttakendur taka afurðir eigin vinnu með sér heim – tilbúnar á grillið eða pönnuna.
Þetta námskeið er jafnt fyrir þá sem vilja hressa upp á vöruúrvalið hjá sér sem og áhugafólk sem elskar að dunda sér við matseld frá grunni.
Hvar og hvenær: 18. apríl 9:00-17:00 í Vörusmiðjunni á Skagaströnd
Fjöldi: 8 þátttakendur
Verð: 24.900
(Ath. Þátttakendur hafa afurðir eigin vinnu með sér heim að námskeiði loknu)
Verkefnið er styrkt af SSNV
Leiðbeinandi: Sigfríður Halldórsdóttir, kjötiðnaðarmeistari
