Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).
Fjallað er um hlutverk húðar, sáragróningarferlið, helstu tegundir sára, mat á sárum, hvetjandi og hamlandi þætti í sáragróningu, umbúðir og eiginleika þeirra. Verkleg kennsla í umbúðalögum/vafningum. Áhersla verður lögð á að kynna hvar hægt er að finna áræðanlegar leiðbeiningar um meðferð sára.
Leiðbeinandi: Þórgunnur Birgisdóttir Hjúkrunarfræðingur á sérhæfðri sáramóttöku á sjúkrahúsinu á Akureyri. Margra ára reynsla frá mismunandi skurðdeildum á Landspítalanum, Sjúkrahúsinu á Akureyri og frá Stavanger universitet sykehus. Diploma af heilbrigðisvísindasviði HA af stjórnunarlínu og viðbótarnám í sárahúkrun frá Høgskolen i sørøst-Norge 2016.
Hvar og hvenær:
26.sept – Sauðárkrókur/Blönduós 9:00-16:00