HSN – Uppleið – hugræn atferlismeðferð

Athugið þetta námskeið er haldið sameiginlega með stéttarfélögum á svæðinu og því verða ekki eingöngu starfsmenn HSN á námskeiðinu. 

Hér er um að ræða 40 klst nám sem byggt er á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar.

Markmið: Er að auka færni þátttakenda í að takast á við hamlandi líðan með því að nýta sér aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) í daglegu lífi. Fjallað verður um þunglyndi og kvíða, markmiðasetningu, breytta hugsun, sjálfsmat og sjálfseflingu og bakslagsvarnir.

Námið samanstendur af fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu bæði í kennslustundum og utan þeirra.

Helstu námsþættir/umfjöllunarefni: 

  • Þunglyndi og kvíði.
  • Markmið.
  • Breytt hugsun – bætt líðan.
  • Sjálfsmat og sjálfsefling.
  • Bakslagsvarnir.

Leiðbeinandi: Líney Úlfarsdóttir Sálfræðingur

Hvar og hvenær: Námið verður kennt á netinu í gegnum ZOOM. Kennt verður tvö kvöld í viku í 12 skipti, þriðjudaga og fimmtudaga 18:00-20:00, hefst 1.október. 18:00-20:00

Lengd: Námið er samtals 40 klukkustundir að lengd og þar af 24 klukkustundir með leiðbeinanda.