Athugið þetta námskeið er haldið sameiginlega með stéttarfélögum á svæðinu og því verða ekki eingöngu starfsmenn HSN á námskeiðinu.
Rætt verður um ýmsar hliðar persónulegra fjármála, frá skuldum og eignum að daglegum útgjöldum og undirbúningi fyrir kostnaðarsöm tímabil á lífsleiðinni.
Sérstök áhersla verður lögð á færni við að haga fjármálum eftir aðstæðum hverju sinni, bregðast við breytingum og fylgjast með þróun í efnahagslífinu. Gefnar verða gagnlegar ábendingar varðandi lántöku, sparnað og uppbyggingu lífeyris svo eitthvað sé nefnt.
Meðal þeirra spurninga sem svarað verður eru:
- Hvernig næ ég bestum árangri í bæði skammtíma- og langtímasparnaði?
- Hvernig veit ég hvaða lánsform hentar mér best?
- Hvaða áhrif hafa breytingar í efnahagslífinu á fjármálin mín?
- Hvernig get ég best varið mig fyrir verðbólgu og háum vöxtum?
- Get ég bætt stöðu mína á efri árum?
Fyrir hverja er námskeiðið? Námskeiðið hentar fólki á öllum aldri sem vill ná betri tökum á fjármálum sínum.
Ávinningur þátttakenda: Þátttakendur munu sjálfir geta gert áætlanir um heimilisfjármálin, hagað þeim eftir aðstæðum og freistað þessa að bæta fjárhagsstöðu sína.
Leiðbeinandi:Björn Berg Gunnarsson hefur 16 ára reynslu af ráðgjöf og fyrirlestrahaldi um fjármál. Hann starfaði lengi sem ráðgjafi á verðbréfa- og lífeyrissviði Íslandsbanka, var fræðslustjóri bankans í yfir áratug og stýrði greiningardeild hans. Hann hefur BS próf í viðskiptafræði, próf í verðbréfaviðskiptum og meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði. Björn er reglulegur álitsgjafi um fjármál í fjölmiðlum, pistlahöfundur og er höfundur bókarinnar Peningar.
Hvar og hvenær:
9. okt – 17:00-19:00 – Vefnámskeið