Viltu læra listina á bak við hið fullkomna soðbrauð eða hvernig á að fletta út þunnu og bragðgóðu laufabrauði? Á þessu námskeiði köfum við ofan í íslenska brauðgerðarhefð.
Við leggjum áherslu á handverkið, tilfinninguna fyrir deiginu og hefðirnar.
Við lærum að baka:
- Soðbrauð: Við lærum réttu handbrögðin við að djúpsteikja soðbrauð þannig að það verði létt og gullinbrúnt.
- Laufabrauð: Við lærum aðferðina við við að gera þunnt stökkt, gómsætt og fallega útskorið laufabrauð
Leiðbeinandi: Ásta Búadóttir, kennari og matreiðslumeistari
Hvar og hvenær:
Sauðárkróki 7. desember klukkan 17:00
Námskeiðið er styrkt af uppbyggingarsjóði norðurlands vestra
Þátttakendur greiða því aðeins efniskostnað
Verð: 7.500 kr
