Pylsur, pulsur, pölser: Handverk, bragð og fjölbreytni

Lærðu að búa til gæðapylsur sem bæði bragðast vel og seljast vel. 

Langar þig að nýta hráefni sem til fellur í annað en hakk, sperðla eða bjúgu? Eða langar þig einfaldlega að læra alvöru handverk til að dýpka „brasið“ heima í eldhúsinu?

Á þessu námskeiði förum við yfir listina að búa til hágæða pylsur sem lyfta bæði vöruúrvali framleiðandans og matarborðinu heima á hærra plan. Við sýnum hvernig má nýta kjötið í eitthvað miklu meira en bara hefðbundið hakk og galdra fram eftirsóttar sælkerapylsur með réttu áferðinni og bragðinu.

Á námskeiðinu er farið yfir:

  • Mismunandi tækni: Allt frá grófum handhrærðum pylsum yfir í silkimjúkar farspylsur.
  • Klassíska mola: Við útbúum t.d. Bratwurst, Medister og djúsí ostapylsur, bæði ferskar og reyktar.
  • Fjölbreytni í úrvali: Frábær leið fyrir þá sem vilja bjóða viðskiptavinum sínum (eða fjölskyldunni!) upp á eitthvað nýtt og spennandi.
  • Afraksturinn heim: Þátttakendur taka afurðir eigin vinnu með sér heim – tilbúnar á grillið eða pönnuna.

Þetta námskeið er jafnt fyrir þá sem vilja hressa upp á vöruúrvalið hjá sér sem og áhugafólk sem elskar að dunda sér við matseld frá grunni.

Hvar og hvenær: 18. apríl  9:00-17:00 í Vörusmiðjunni á Skagaströnd

Fjöldi: 8 þátttakendur

Verð: 24.900

(Ath. Þátttakendur hafa afurðir eigin vinnu með sér heim að námskeiði loknu)

Verkefnið er styrkt af SSNV

Leiðbeinandi: Sigfríður Halldórsdóttir, kjötiðnaðarmeistari