Umbóta lífið: Að bæta/auka skilvirkni í einkalífinu – vefnámskeið

Á þessu 2 klukkustunda námskeið mun Viktoría fara yfir hvernig er hægt að nota umbóta hugmyndafræði í persónulega lífinu til þess að ná meiri skilvirkni og árangri. 

Umbóta hugmyndafræðin hefur verið nýtt í fyrirtækjum erlendis og á íslandi síðustu ár með mjög góðum árangri. Þetta námskeið mun fara yfir hvernig er hægt að nýta þau tól og tæki sem  hugmyndafræðin býður upp á heima hjá sér og í einkalífinu. 

Farið verður yfir ýmis verkfæri sem hjálpa þér að ná betri yfirsýn yfir verkefni heimilisins, meiri skilvirkni og skipulagningu ásamt bættri tímastjórnun. 

Leiðbeinandi :

Viktoría Jensdóttir starfar sem forstöðumaður verkefna og stefnumótunar á framleiðslusviði Össurar. Hún hefur starfað að stöðugum umbótum (lean) í yfir 15 ár í mismunandi iðnaði m.a. hjá Alcoa, Össuri, Símanum og Landspítalanum. Ásamt því hefur hún kennt stöðugar umbætur hjá Háskóla Íslands og Opna háskólanum. 

Hvar og hvenær: 14.nóvember 17:00-19:00

Lengd: 2.klst.

Verð: 23.500 kr*

*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi