Farskólinn býður upp á raunfærnimat í almennri starfshæfni í nóvember.
Raunfærnimat í almennri starfshæfni gefur yfirlit yfir þá hæfni sem einstaklingur þarf að búa yfir eða tileinka sér til þess að taka á virkan hátt þátt í samfélaginu, vera á vinnumarkaði, þróast í starfi og geta tekið á sig meira krefjandi störf.
Til þín:
- Með almennri starfshæfni er verið að meta persónulega hæfni þína, sem er mikilvæg á vinnumarkaði nútímans og vinnumarkaði næstu framtíðar og er sameiginleg flestum störfum.
- Þú mátar þig við fyrirfram skilgreinda hæfni sem skiptir máli á vinnumarkaði. Þannig færð þú gott yfirlit yfir stöðu þína og styrkleika. Jafnframt færð þú yfirlit yfir þá þætti sem þú þarf að efla og þannig styrkir þú stöðu þína á vinnumarkaði.
- Eftir matið færðu niðurstöður sem sýna hvar hæfni þín liggur. Þannig færð þú skýra sýn á styrkleika þína og í framhaldi hvaða hæfni megi styrkja. Þú færð einnig umsögn frá matsaðila sem byggir á niðurstöðum og frammistöðu þinni í ferli matsins. Niðurstöður eru þín eign og þú getur notað þær, t.d. til að lýsa hæfni þinni í ferilskrá eða atvinnuviðtali.
Farskólinn býður upp á 15 pláss í nóvember og raunfærnimatið er ókeypis.
Nánari upplýsingar í síma: 455 – 6160 eða á sandra(hjá)farskolinn.is.