Sjálfsmatsskýrsla vegna ársins 2023 er komin á heimasíðu Farskólans.
Árið 2023 voru eftirfarandi matsverkefni framkvæmd:
- EQM+. Farið í gegnum alla sjálfsmatslista sem tilheyra gæðamatskerfinu EQM+ og umbótaáætlun sett fram.
- Námskeiðsmat lagt fyrir alla þá sem tóku þátt í námskeiðunum íslenska sem annað mál og Skref til sjálfshjálpar (líka íslenskunámskeið).
- Námskeiðsmat lagt fyrir þátttakendur í vottuðu námsleiðinni Sterkari starfskraftur.
- Mat á framkvæmd raunfærnimats lagt fyrir tvo hópa sem fóru í raunfærnimat á árinu 2023.
Niðurstöðurnar liggja fyrir í Sjálfsmatsskýrslu fyrir árið 2023. Í skýrslunni kemur einnig fram matsáætlun vegna ársins 2024.
Þess má geta að niðurstöður úr námskeiðsmati vegna íslensku sem annars máls eru sendar á ráðuneyti félags- og vinnumála, eins og reglur gera ráð fyrir.