Tæplega hundrað manna fundur verkefnastjóra og náms- og starfsráðgjafa fræðslu- og símenntunarmiðstöðva fór fram á Akureyri 27. og 28. september í húsnæði SÍMEY. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og SÍMENNT, samtök fræðslu- og símenntunarmiðstöðva, stóðu sameiginlega að fundinum sem bæði var staðbundinn og í gegnum fjarfundarbúnað. Gestir fundarins voru frá símenntunarmiðstöðvum sem tilheyra SÍMENNT, sem og frá Starfsmennt, Iðunni og Rafmennt ásamt Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
Í upphafi fundarins tilkynnti formaður SÍMENNTAR, Sólveig Hildur Björnsdóttir framkvæmdastjóri Mímis, um nafnabreytingu á samtökum fræðslu- og símenntunarmiðstöðva, áður KVASIR, sem samþykkt var samhljóða á nýafstöðnum aðalfundi samtakanna. Leitað var til fjölmargra um álit og tillögur að nýju nafni, og var niðurstaðan um val á nafninu SÍMENNT afgerandi.
Leiðarstef fundarins var samtal og samvinna innbyrðis enda er mikil gróska og nýsköpun hjá miðstöðvum í framhaldsfræðslunni. Tólf erindi fóru fram í fjórum vinnustofum þar á meðal erindi um fjölbreyttar kennsluaðferðir í framhaldsfræðslu og verkfæri við miðlun náms, áskoranir og tækifæri í markaðs- og kynningarmálum, samstarf miðstöðva við vinnustaði um framhaldsfræðslu og þróun rafrænnar ráðgjafar. Þá voru einnig erindi um starfstengda íslenskukennslu, samstarf um virkniúrræði, þarfagreiningar fyrir fræðslu á vinnustöðum, nám fatlaðs fólks, sem og fjölmenningu og þjónustu við flóttamenn. Auk þessa fóru fram kynningar á fagbréfi atvinnulífsins og tengingu jákvæðrar sálfræði við framhaldsfræðslu.
Fréttin er sótt á heimasíðu Mímis