Pétur Erlingsson, fyrrverandi námsmaður í Grunnmennt valinn fyrirmynd í námi fullorðinna árið 2023.

Í dag hlaut fyrrverandi (og aftur væntanlegur)  námsmaður hjá Farskólanumi, Pétur Erlingsson, viðurkenningu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins sem Fyrirmynd í námi fullorðinna árið 2023 ásamt tveimur öðrum; þeim Beatu Justyna Bistula og Ómari E. Ahmed.  Viðurkenningin var veitt á ársfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins sem fram fór í dag á Grand Hóteli undir yfirskriftinni Rík af reynslu – lærum hvert af öðru. Viðurkenningin er veitt fyrir bætta stöðu á vinnumarkaði og í námi og komu tilnefningar víðsvegar að.

Um Pétur

Nánar má lesa um Pétur hér á síðunni til hliðar. 

Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins

Áherslur ársfundar Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins voru að þessu sinni að varpa ljósi á mikilvægi virkrar hæfnistefnu á Íslandi og ávinning fyrir bæði einstaklinga og atvinnulífið. Vitnað var til hæfnistefnu Evrópusambandsins þar sem fram kemur að besta fjárfesting til framtíðar sé fjárfesting í fólki og að hæfni og menntun sé drifkraftur samkeppnishæfni og nýsköpunar. Réttur til símenntunar skipti sköpum. Vinnumarkaðurinn breytist hratt og í mörgum Evrópulöndum er verið að endurmeta leiðir í þjálfun og menntun með inngildingu að leiðarljósi.

Fundurinn hófst á ávarpi Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra. Maj-Britt Hjördís Briem, stjórnarformaður Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og lögmaður hjá Samtökum atvinnulífsins fjallaði um færnimat til framtíðar. Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, sagði frá yfirstandandi vinnu við endurskoðun laga um framhaldsfræðslu. Elisabeth Bøe, ráðgjafi í deild færniþróunar í atvinnulífinu hjá Stofnun háskólamenntunar og hæfni í Noregi fjallaði um verkefni og verkfæri til að efla nám fullorðinna og auka þátttöku í símenntun. Að lokum fjallaði Anna Kahlson, sérfræðingur hjá Fagháskólastofnuninni í Svíþjóð, um gildi skilvirks og sveigjanlegs framboðs á færni í tengslum við umbreytingar, endurmenntun og færniþróun í Svíþjóð.

Aftur: Hér til hægri má lesa viðtal við Pétur Erlingsson, en hann stundaði nám í Grunnmennt, sem er ein af vottuðum námsleiðum FA. Grunnmennt er einmitt kennd í Farskólanum nú á haustönn og vorönn 2024.