Námsverið á Blönduósi er staðsett í kjallara Kvennaskólans að Árbraut 31. Gengið er niður tröppur í austurenda hússins. Aðgengi er fyrir fatlaða. Námsverið er fyrst og fremst ætlað háskólanemum í fjarnámi.
Í námsverinu er fjarfundabúnaður. Fjarnemendur hafa aðgang að tölvum og ágætis kaffiaðstöðu með ísskápi og örbylgjuofni.
Tengiliður Farskólans við námsverið er Katharina Schneider verkefnastjóri hjá Þekkingarsetrinu en Textílmiðstöð Íslands – Þekkingarsetur á Blönduósi er í sama húsi. Síminn er: 452-4030.
Það er sveitarfélagið – Húnabyggð – sem rekur námsverið.
Farskólinn kennir námskeið í Húnaskóla til dæmis íslenskunámskeið og námskeið fyrir fatlaða.