Vigdís Lillý Sigurjónsdóttir er umsjónarmaður. Síminn hjá henni er 451-2607 og 896-1345.
Námsverið í Húnaþingi vestra er á Hvammstanga, að Höfðabraut 6.
Námsverið er beint fyrir ofan bókasafnið. Í námsverinu er ein kennslustofa, fjarfundabúnaður, tölvur fyrir nemendur, aðstaða til ljósritunar og kaffiaðstaða. Nemendur geta fengið lykla að námsverinu í samráði við umsjónarmann.
Það er sveitarfélagið Húnaþing vestra sem rekur Námsverið.