HSN – Mannréttindi aldraðra

Þetta námskeið er ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).

Efni sem farið er yfir í fyrirlestrinum:

Kíkt á lög, reglugerðir, mannréttindayfirlýsingar – stuttur en nauðsynlegur inngangur.

Lög um málefni aldraðra skoðuð sérstaklega í þessu ljósi.

Sjúkdómsvæðing öldrunar.

Sjálfsákvörðunarréttur/öryggi og velferð – eru það andstæður? Alltaf? Stundum?

Öldrunarþjónusta í ljósi mannréttindayfirlýsinga (ekki síst nýlegra mannréttindayfirlýsinga fatlaðra frá Sameinuðu þjóðunum).

Sérstök vandamál íslenskrar öldrunarþjónustu hvað snertir mannréttindi og hugmyndir um lausnir á þeim.

Leiðbeinandi: Sigrún Huld Þorgrímsdóttir.

Hvar og hvenær: 22. Apríl kl. 14-16, vefnámskeið.