Jólaborðið

Lýsing: Viltu bjóða upp á heimatilbúna rétti til að bjóða upp á í kringum hátíðirnar ?
Skemmtilegt er að búa til sína eigin rétti og meðlæti á jólaborðið.
Á námskeiðinu verður búið til paté, lifrarkæfa, hátíðarsíld, grafin fiskur og kjöt. Meðlæti og sósur sem falla vel að þessum réttum eins og Cumberland sósa, remúlaði, graflaxsósa, sultaður laukur, rauðkál og sykrað hvítkál.
Þátttakendur taka með sér heim afurðir dagsins

Hvar og hvenær:

24.nóvember. 9:00-17:00. Í skólaeldhúsum á Norðurlandi vestra. 

Fjöldi: 8 þátttakendur

Lengd: 8 klst

Verð: 36.500 kr.* 

Leiðbeinandi: Þórhildur Jónsdóttir, matreiðslumeistari

*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi